Hótel-draumurinn við Miðbakka úti — Rafnar kaupir Geirsgötu 11 á 1,3 milljarða
Rafnar kaupir Geirsgötu 11 á Miðbakka af Berjaya fyrir 1,29 milljarða — Four Seasons hótel-áformin endanlega úr sögunni.
Haftæknifyrirtækið Rafnar ehf. hefur fest kaup á fasteigninni að Geirsgötu 11 á Miðbakka við Gömlu höfnina í Reykjavík af malasísku hótelsamstæðunni Berjaya fyrir 1.290 milljónir króna. Þar með er endanlega úr sögunni draumur um fimm stjörnu Four Seasons hótel á reitnum.
Dótturfélag Berjaya keypti fasteignina árið 2019 og hafði hugmyndir um 150 herbergja hótel á lóðum nr. 11, 13 og 15 við Geirsgötu — fjárfestingu upp á um 40 milljarða króna. Ekki náðist þó samkomulag við Reykjavíkurborg og Faxaflóahafnir, lóðareigandann, sem vildi forgangsraða uppbyggingu á hafnarsvæðum fyrir hafnsækna starfsemi.
Kaupin eru gerð gegnum Rafnar fasteignir ehf., systurfélag Rafnars, sem hafði leigt meirihluta húsnæðisins frá 2023. Rafnar þróar haftæknilausnir. Útgerðarfélag Reykjavíkur er næststærsti hluthafinn með 25%.