Mesta hættan að steypubrot gætu fallið á gesti
Nýtt áhættumat Verkís bendir á að steypubrot gætu fallið af áhorfendastúkunni í Laugardal, sem gæti haft lífshættulegar afleiðingar. Heitir pottar og svæði við stúkuna verða lokuð í að minnsta kosti hálft ár vegna þessa.
Mesta og bráðasta hættan sem stafar af áhorfendastúkunni í Laugardal er að steypubrot gætu fallið á gesti eða starfsfólk, eða að mannvirkið gæti hrunið að hluta. Þetta kemur fram í nýju áhættumati Verkís sem kynnt var í gær. Sérstaklega er bent á að súlur eða hnútpunktar gætu gefið sig undan eigin þunga eða álagi eins og snjó, vindi eða jarðskjálftum. Afleiðingar slíks hruns gætu verið lífshættulegar og valdið fjöldaslysi.
Verið er að leggja niður skyggni og setusvæði stúkunnar og er mögulegt að allt mannvirkið verði fjarlægt á einhverjum tímapunkti, en það veltur á framtíðarstarfsemi laugarinnar. Heitir pottar og svæði við áhorfendastúku í Laugardalslaug verða lokuð í að minnsta kosti hálft ár. Svæðum við stúkuna verður lokað og girt af frá og með deginum í dag, en það nær yfir pottana innan laugarsvæðisins og svæði hinum megin við mannvirkið.
Guðni Guðmundsson, skrifstofustjóri framkvæmda og fasteignaþjónustu hjá Reykjavíkurborg, segir að verið sé að kortleggja næstu skref í samráði við ráðgjafa og innanhúss. Stærðargráða og kostnaður vegna málsins hafa ekki verið áætlaðir en markmiðið er að hefja innkaupaferli og rífa niður það sem þarf. Eftir niðurrif á skyggni og setusvæðum mun gufubað og aðstaða starfsfólks undir stúkunni standa eftir, en frekari greiningar á mannvirkinu eru nauðsynlegar.
Heimild: RÚV