Meiri hluti fjárframlaga fer nú til leigjenda
Ný greining Viðskiptaráðs sýnir að meiri hluti húsnæðisstuðnings hins opinbera rennur nú til leigjenda, sem er mikil breyting frá fyrri árum. Árið 2025 námu heildarframlög um 32 milljörðum króna í gegnum sjö mismunandi úrræði.

Fyrir árið 2016 runnu um eða yfir 75% stuðningsins til einstaklinga sem áttu eða voru að eignast húsnæði. Eftir að áhrif Leiðréttingarinnar, sem fól í sér lækkun verðtryggðra húsnæðislána og skattfrjálsa ráðstöfun séreignarsparnaðar, fjöruðu út, dró verulega úr stuðningi á eignahlið markaðarins.
Frá árinu 2018 hefur meiri hluti alls húsnæðisstuðnings hins opinbera runnið til leigjenda. Stuðningur við leigjendur felst nær allur í beinum eða óbeinum fjárframlögum, svo sem húsnæðisbótum og stofnframlögum til húsnæðisfélaga. Á eignahliðinni felst stuðningur að mestu í skattívilnun vegna skattfrjálsrar ráðstöfunar séreignarsparnaðar.
Viðskiptaráð telur ástæðu til að endurskoða kerfið þannig að stuðningur verði hlutlaus gagnvart búsetuformi og fylgi frekar einstaklingum en tilteknum íbúðum. Ráðið gagnrýnir einnig að hluti stuðningsins sé bundinn við ákveðnar íbúðir, sem getur leitt til mismunandi stuðnings eftir því hvort einstaklingar komast inn í tiltekið húsnæðiskerfi.