Meirihluti gildra leigusamninga tímabundinn og leiguverð almennt lægra í ótímabundnum samningum
Nýjustu tölur Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) úr leiguskrá sýna að rúmlega helmingur gildra leigusamninga á Íslandi er tímabundinn. Gögnin leiða jafnframt í ljós að leiguverð er að jafnaði lægra í ótímabundnum samningum á almennum markaði, en þróunin er öfug þegar sveitarfélög eiga í hlut.
Fjölgun í leiguskrá þrátt fyrir færri nýskráningar
Alls tóku 1.328 nýir leigusamningar gildi í apríl á sama tíma og 1.061 samningur féll úr gildi. Gildum samningum fjölgaði því um 267 á milli mánaða. Þrátt fyrir að almenn skráningarskylda leigusamninga hafi tekið gildi um áramótin, fækkaði nýskráðum samningum á milli ára en í apríl í fyrra tóku 1.466 samningar gildi. Samhliða skráningarskyldunni tók afskráningarskylda einnig gildi, sem gæti skýrt hvers vegna fleiri samningar féllu úr gildi nú en á sama tíma í fyrra.
Tímabundnir samningar enn í meirihluta
Tímabundnir leigusamningar, sem hafa fyrir fram skilgreindan lokadag, eru áfram algengari en ótímabundnir samningar. Í aprílmánuði voru um 52% allra gildra samninga tímabundnir. Hlutfallið hefur þó lækkað lítillega á síðustu misserum, en það mældist 54% í janúar á síðasta ári.
Ótímabundnir samningar ódýrari á almennum markaði
Samkvæmt leiguverðsjá HMS er meðalleiguverð og fermetraverð almennt lægra í ótímabundnum samningum. Þegar litið er til 2–3 herbergja íbúða á höfuðborgarsvæðinu, er þessi munur sýnilegur hvort sem leigusali er einstaklingur, hagnaðardrifið eða óhagnaðardrifið leigufélag.
Mestur er munurinn á heildarverði hjá einstaklingum, þar sem ótímabundnir samningar eru að meðaltali 13% ódýrari en þeir tímabundnu. Hjá hagnaðardrifnum leigufélögum er munurinn minnstur, eða um 4%.
Öfug staða hjá sveitarfélögum
Hjá sveitarfélögum snýst þessi þróun við. Þar er heildarverð í ótímabundnum samningum að meðaltali 6% hærra en í tímabundnum samningum og fermetraverðið um 1% hærra. Ólíkt því sem gerist á almennum markaði eru langflestir samningar sveitarfélaga ótímabundnir, eða um 80% þeirra samninga sem nú eru í gildi.