Meirihluti flokka í Reykjavík vill auka hlutdeild leiguhúsnæðis
Sex af þeim flokkum sem bjóða fram í Reykjavík í komandi sveitarstjórnarkosningum eru hlynntir því að auka hlutdeild leiguhúsnæðis og óhagnaðardrifins íbúðakerfis á húsnæðismarkaði. Þetta kemur fram í Kosningaáttavita Viðskiptaráðs.
Umræddir flokkar eru Vinstrið, Sósíalistaflokkur Íslands, Píratar, Samfylking, Flokkur fólksins og Góðan daginn framboðið. Framsókn er hlutlaus í báðum liðum, en Okkar borg, Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur eru andvígir aukinni hlutdeild leiguhúsnæðis. Viðreisn er hlutlaus um leiguhúsnæði en andvíg aukningu óhagnaðardrifins kerfis.
Varðandi frjálsræði verktaka til að ákveða fjölda bílastæða við nýbyggingar skiptast flokkarnir jafnt. Hlynntir eru Okkar borg, Viðreisn, Góðan daginn framboðið, Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur, en Vinstrið, Sósíalistaflokkur Íslands, Píratar, Samfylking og Flokkur fólksins eru andvígir.
Sjá nánar: mbl.is