Malbikun hefur áhrif á umferð í kvöld og í nótt
Vegagerðin minnir vegfarendur á malbikunarframkvæmdir sem verða í kvöld og nótt og munu hafa áhrif á umferð. Þrengt verður í akreinir og vegfarendur beðnir um að sýna aðgát.
Vegagerðin vekur athygli á malbikunum og malbiksviðgerðum sem kunna að hafa áhrif á vegfarendur í kvöld og í nótt.
Sunnudagskvöld 23. ágúst, frá klukkan 20:00 til 23:30, verður malbikað í norðurátt frá Korpúlfsstaðavegi. Einnig verður malbikað í norðurátt frá Skarhólabraut frá klukkan 21:00 til 01:30. Þrengt verður í eina akrein framhjá vinnusvæðum.
Þá er stefnt á malbiksviðgerðir á Vesturlandsvegi undir Hafnarfjalli frá klukkan 20:00 til 07:00.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.
Heimild: RÚV