Malbikað við Hafnarfjall annað kvöld
Malbiksviðgerðir á Vesturlandsvegi við Hafnarfjall hefjast annað kvöld og munu valda umferðartöfum. Framkvæmdirnar standa yfir frá klukkan 20:00 til klukkan 07:00 að morgni mánudags.
Malbiksviðgerðir á Vesturlandsvegi við Hafnarfjall hefjast annað kvöld, sunnudaginn 23. ágúst.
Framkvæmdirnar standa yfir frá klukkan 20:00 til klukkan 07:00 að morgni mánudags og mun Colas sjá um þær.
Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát við vinnusvæðin, virða merkingar og hraðatakmarkanir. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki verða nálægt akstursbrautum.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Skessuhorn
Heimild: Skessuhorn