Meira afl fyrir orkuna – Landsvirkjun stendur vörð um orkuöryggi Íslands
Íslenskt samfélag stendur frammi fyrir vaxandi áskorunum í orkumálum, þar sem líkur eru á að raforkuþörf verði ekki uppfyllt á allra næstu árum. Þetta er ekki nýtt vandamál, heldur hefur það endurspeg
Íslenskt samfélag stendur frammi fyrir vaxandi áskorunum í orkumálum, þar sem líkur eru á að raforkuþörf verði ekki uppfyllt á allra næstu árum. Þetta er ekki nýtt vandamál, heldur hefur það endurspeglast í umræðum um orkuöryggi og í spám Orkustofnunar og Landsnets. Landsvirkjun, sem stærsti orkuframleiðandi landsins, hefur brugðist við þessari stöðu með markvissum framkvæmdum og áherslu á að tryggja nægjanlegt stýranlegt afl til að mæta sveiflum í kerfinu.
Illa hefur gengið að koma verkefnum tengdum aukinni raforkuvinnslu í gegnum flókið leyfisveitinga- og kæruferli, en nú hillir loks undir breytingar. Framkvæmdir við byggingu Vaðölduvers eru í fullum gangi og bygging Hvammsvirkjunar kemst vonandi á fullan skrið á allra næstu mánuðum. Þessar framkvæmdir eru mikilvægur liður í því að auka heildarorkuframleiðslu landsins og mæta vaxandi eftirspurn.
Það gleymist hins vegar stundum að ekki er nóg að afla orku inn í raforkukerfið heldur þarf einnig að setja upp nægilegt stýranlegt afl til að mæta þörf fyrir sveigjanleika. Næg orka er eitt, nægt afl annað. Þetta má líkja við rútu sem ekur eftir þjóðveginum. Hún er með nægilegt bensín, þ.e. orku, en ekki nægilega öfluga vél til að komast upp allar brekkur. Aflið skortir til að nýta orkuna. Ítrekað hefur reynt á aflgetu raforkukerfisins undanfarin ár og raforkuspár Landsnets benda til að aflskortur geti orðið viðvarandi í raforkukerfinu í nánustu framtíð. Þörf fyrir sveigjanleika fer vaxandi vegna m.a. orkuskipta og innkomu vindorkuvera, en rekstur vindorkuvera kallar á stýranlegt afl á móti vindorkunni til að tryggja stöðuga afhendingu orku.
Landsvirkjun hefur ávallt lagt áherslu á að byggja upp öflugt og sveigjanlegt vinnslukerfi. Þótt oft sé nefnt að fyrirtækið ráði yfir nær öllu stýranlegu afli í landinu, er það afleiðing af fyrirhyggju og fjárfestingum í aflgetu umfram lágmarksþarfir. Þetta afl nýtist sem stýranlegt afl í kerfinu og er grundvallaratriði fyrir orkuöryggi landsins. Aðrir framleiðendur hafa kosið að setja ekki upp afl umfram lágmarksþarfir að sama marki, enda fylgir slíkum fjárfestingum talsverður kostnaður. Þetta á bæði við um önnur orkufyrirtæki sem reka vatnsaflsstöðvar sem og fyrirtæki sem reka jarðvarmastöðvar. Vinnslukerfi Landsvirkjunar hefur ávallt verið hannað með það í huga að tryggja stöðugleika og öryggi í orkuafhendingu, sem er mikilvægara nú en nokkru sinni fyrr.
Heimild: isor.is