Flutningum á fyrstu 14 vindmyllunum lokið

Umfangsmiklu flutningsverkefni Landsvirkjunar er nú lokið, en þá hefur fyrstu 14 vindmyllunum verið komið fyrir á framkvæmdasvæðinu við Vaðöldu. Þetta verkefni, sem er hluti af uppbyggingu Vaðölduvers

Flutningum á fyrstu 14 vindmyllunum lokið
Mynd: Kris Møklebust / Pexels

Umfangsmiklu flutningsverkefni Landsvirkjunar er nú lokið, en þá hefur fyrstu 14 vindmyllunum verið komið fyrir á framkvæmdasvæðinu við Vaðöldu. Þetta verkefni, sem er hluti af uppbyggingu Vaðölduvers, hefur kallað á vandaðan undirbúning og náið samstarf fjölmargra aðila til að tryggja öryggi og skilvirkni.

Flutningarnir voru afar krefjandi og sáu ET þungaflutningar og Bergen Spesial Transport um þá fyrir Enercon, framleiðanda vindmyllanna. Meðal þess sem flutt var voru risastórir turnhlutar, vélarhús, rafalar og tæplega 69 metra langir vindmylluspaðar. Þá var einnig fluttur safnstöðvarspennir Vaðölduvers frá Þorlákshöfn eftir sömu flutningsleið. Til að tryggja hnökralausa framkvæmd þurfti að ráðast í vegbætur á völdum stöðum og var samstarf við lögreglu, Vegagerðina, sveitarfélög og aðra hagsmunaaðila lykilatriði.

Landsvirkjun þakkar öllum sem komu að undirbúningi og framkvæmd flutninganna fyrir gott samstarf. Sérstakar þakkir fá íbúar og aðrir vegfarendur fyrir tillitssemi og þolinmæði á meðan á flutningunum stóð, en þeir fóru að miklu leyti fram að næturlagi til að trufla sem minnst.

Nú er hafist handa við samsetningu og uppsetningu fyrstu 14 vindmyllanna á framkvæmdasvæðinu við Vaðöldu. Vaðölduver verður byggt upp í tveimur áföngum og mun hýsa alls 28 vindmyllur. Fyrri áfanginn nær yfir þær 14 vindmyllur sem nú hafa verið fluttar á svæðið. Næsta vor hefjast síðan flutningar á íhlutum 14 vindmylla til viðbótar, sem markar upphaf seinni áfanga verkefnisins.

Þeim sem vilja kynna sér framkvæmdirnar er bent á útsýnis- og áningarstað sunnan við Vaðölduver og Sprengisandsleið. Þar eru bílastæði, stutt gönguleið að útsýnissvæði og upplýsingaskilti um verkefnið. Frá staðnum er gott útsýni yfir vindmyllurnar og framkvæmdasvæðið, en áningarstaðurinn er hluti af deiliskipulagi Vaðölduvers.

Heimild: isor.is

Deila Facebook X LinkedIn