Lúxustjöld nýjasta nýtt á Hömrum
Útilífsmiðstöð skáta á Akureyri, Hamrar, hefur fest kaup á tólf lúxustjöldum sem ætlunin er að setja upp á tjaldsvæðinu á næsta ári. Með þessu er ætlunin að draga úr árstíðasveiflum á tjaldsvæðinu og teygja gistitímabilið lengra fram á haust.
Útilífsmiðstöð skáta á Akureyri, Hamrar, hefur fest kaup á tólf lúxustjöldum sem ætlunin er að setja upp á tjaldsvæðinu á næsta ári.
Tjöldin, sem eru sex af hvorri gerð, voru keypt notuð af aðstandendum Almyrkvahátíðarinnar á Hellissandi og fylgdi með þeim búnaður eins og dýnur, borð og rúmföt.
Ásgeir Hreiðarsson, framkvæmdastjóri Hamra, segir að næsta skref sé að finna tjöldunum hentugan stað og undirbúa svæðið fyrir uppsetningu. Stefnt er að því að prófa þennan gistimöguleika næsta sumar og bjóða gestum upp á fullbúna lúxusgistingu í tjöldum.
Með þessu er ætlunin að draga úr árstíðasveiflum á tjaldsvæðinu og teygja gistitímabilið lengra fram á haust. Þessi nýjung er hluti af því að þróa starfsemina á Hömrum enn frekar og bjóða upp á fjölbreyttari gistimöguleika.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Akureyri.net
Heimild: Akureyri.net