Lokun vegna endurnýjunar umferðarljósa á Háaleitisbraut/Smáagerði
Reykjavíkurborg endurnýjar umferðarljós á gatnamótum Háaleitisbrautar og Smáagerðis miðvikudaginn 23. september. Framkvæmdirnar hafa í för með sér tímabundna lokun á hluta Háaleitisbrautar.
Reykjavíkurborg stendur fyrir endurnýjun á umferðarljósum við gatnamót Háaleitisbrautar og Smáagerðis. Þetta hefur í för með sér tímabundna lokun á hluta Háaleitisbrautar.
Framkvæmdirnar hefjast klukkan 9:00 miðvikudaginn 23. september og er gert ráð fyrir að þeim ljúki seinnipart sama dags.
Háaleitisbraut til norðurs verður lokuð rétt norðan við gatnamótin og verður umferð þá beint um Smáagerði sem hjáleið.
Á Háaleitisbraut til suðurs verður önnur akrein lokuð í einu, en umferð verður áfram leyfð um framkvæmdasvæðið.
Reykjavíkurborg biðst velvirðingar á þeim truflunum sem þetta kann að valda.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Reykjavíkurborg
Heimild: Reykjavíkurborg