Lokun Borgarbrautar vegna framkvæmda

Borgarbraut á Akureyri verður lokuð fyrir umferð frá klukkan 12:00 mánudaginn 1. júní til og með 19. júní vegna framkvæmda. Um er að ræða fræsingar, undirbúning og malbikunarvinnu á kaflanum frá Merkigili að gatnamótum Brattasíðu og Langamóa. Lokað v

Lokun Borgarbrautar vegna framkvæmda
Mynd: pxhere.com (CC0)

Borgarbraut á Akureyri verður lokuð fyrir umferð frá klukkan 12:00 mánudaginn 1. júní til og með 19. júní vegna framkvæmda. Um er að ræða fræsingar, undirbúning og malbikunarvinnu á kaflanum frá Merkigili að gatnamótum Brattasíðu og Langamóa. Lokað verður við gatnamót Merkigils, Borgarsíðu og Langamóa á meðan framkvæmdum stendur. Á framkvæmdatímanum verður hjáleið fyrir umferð um Síðubraut. Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og virða merkingar á svæðinu.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Akureyrarbær

Heimild: Akureyrarbær

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →