Lokað fyrir kalt vatn í Ránargötu og Fjarðargötu 21. október

Vegna tengingar nýrrar vatnslagnar í Ránargötu á Seyðisfirði verður vatnslaust í Ránargötu og Fjarðargötu miðvikudaginn 21. október. Framkvæmdirnar ná til Ránargötu frá tjaldsvæðisafleggjaranum og út eftir, auk allrar Fjarðargötu. Áætlað er að vatni

Lokað fyrir kalt vatn í Ránargötu og Fjarðargötu 21. október
Mynd: Braggi.is

Vegna tengingar nýrrar vatnslagnar í Ránargötu á Seyðisfirði verður vatnslaust í Ránargötu og Fjarðargötu miðvikudaginn 21. október. Framkvæmdirnar ná til Ránargötu frá tjaldsvæðisafleggjaranum og út eftir, auk allrar Fjarðargötu.

Áætlað er að vatnið verði tekið af um klukkan 10:00 og komið aftur á um klukkan 18:00 sama dag. Íbúar eru hvattir til að hafa krana lokaða á meðan á framkvæmdum stendur og láta vatnið renna í smástund þegar það kemst aftur á, þar sem loft eða grugg getur verið í lögnum í upphafi. Tímasetningar geta breyst ef óvæntir atburðir koma upp.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Múlaþing

Heimild: Múlaþing

Deila Facebook X LinkedIn