Loka hringveginum sunnan við Borgarnes tvö kvöld
Hringvegurinn verður lokaður sunnan við Borgarnes tvö kvöld vegna vegna malbiksfræsingar. Hjáleið verður merkt um Borgarfjarðarbraut.
Colas verktaki mun fræsa Hringveginn í gegnum Borgarnes, frá Borgarbraut að brúnni yfir Borgarfjörð, sunnudagskvöldið 16. ágúst og mánudagskvöldið 17. ágúst.
Veginum verður lokað á meðan framkvæmdir standa og verður merkt hjáleið um Borgarfjarðarbraut.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá klukkan 21:00 til klukkan 07:00 bæði kvöldin.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin, sem eru þröng þar sem menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Skessuhorn
Heimild: Skessuhorn