Lögreglustöð á Seyðisfirði sögð í forgangi en engin svör um hvenær
Dómsmálaráðherra hefur lýst því yfir að úrbætur á húsnæði lögreglunnar á Seyðisfirði séu í sérstökum forgangi, þar sem staðan þar er talin með því alvarlegasta á landinu. Engin skýr svör hafa þó fengist um hvenær ríkið muni tryggja fjármögnun til að
Dómsmálaráðherra hefur lýst því yfir að úrbætur á húsnæði lögreglunnar á Seyðisfirði séu í sérstökum forgangi, þar sem staðan þar er talin með því alvarlegasta á landinu. Engin skýr svör hafa þó fengist um hvenær ríkið muni tryggja fjármögnun til að hefja hönnun á nýrri lögreglustöð. Þetta kom fram í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í síðustu viku.
Jónína Brynjólfsdóttir, varaþingmaður Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi og forseti sveitarstjórnar Múlaþings, spurði Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur, dómsmálaráðherra, um stöðu málsins. Jónína benti á mikilvægi Seyðisfjarðar sem lykillandamærastöðvar vegna komu Norrænu og nefndi stórar fíkniefnasendingar sem lögreglan hefur stöðvað þar, þar á meðal 45 kíló af kókaíni.
Lögregluna hefur um árabil skort sérhæft húsnæði með öryggiskröfum, fangaklefum, rannsóknaraðstöðu og plássi fyrir haldlagða muni. Aðstaða lögreglu og Tollgæslu er í ferjuhúsinu á Seyðisfirði sem er í eigu Múlaþings. Jónína spurði ráðherra hvort það teldist eðlilegt að sveitarfélagið tæki á sig fjárhagslega áhættu af byggingu slíkrar landamærastöðvar eða hvort ríkið ætlaði að tryggja langtímaleigusamning eða beina fjármögnun. Þorbjörg Sigríður staðfesti að húsnæðismál lögreglunnar á Austurlandi og Vestfjörðum væru verst.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Austurfrétt
Heimild: Austurfrétt