Lögnin komin á land en ekki ljóst hvort hún beri vatn
Ný vatnslögn til Vestmannaeyja kom í land í nótt en óvíst er hvenær hægt verður að prófa hvort hún geti flutt vatn vegna skemmda sem hún varð fyrir í síðustu viku.
Ný vatnslögn til Vestmannaeyja kom í land í nótt. Talsverður tími mun þó líða áður en hægt verður að kanna hvort hún geti sinnt hlutverki sínu eftir skemmdir sem hún varð fyrir í síðustu viku.
„Við búumst við því að það taki svona tvær vikur að klára það sem þarf að gera til þess að hægt sé að prófa það og þrýstiprófa hana, sjá hvort hún geti flutt eitthvert vatn,“ segir Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum.
Lagningaskipið Subsea 7 yfirgaf Vestmannaeyjar um klukkan hálf fjögur í nótt og tóku aðrir verktakar við til að koma lögninni í land. Fyrirtækið Subsea 7 hefur umsjón með verkefninu sem hófst 4. ágúst. Lögnin varð fyrir skemmdum í síðustu viku á meðan unnið var að útlagningu hennar.
Vestmannaeyjabær ákvað í samráði við fyrirtækið að klára að leggja vatnslögnina svo hægt verði að nýta hana að einhverju marki. Ekki liggur enn fyrir hversu miklar skemmdir urðu á lögninni og hvorki fyrirtækið né sveitarfélagið vilja gefa upp hvað nákvæmlega kom fyrir hana.
Unnin var forskýrsla um atvikið sem Íris segist þó ekki geta tjáð sig um. Beðið verður eftir endanlegri greiningu. „Það fáum við bara að vita í þessari lokaskýrslu sem á líklega að koma eftir tvær vikur líka,“ segir hún.
Nýja lögnin er til vara ef eitthvað kemur fyrir neysluvatnslögnina til Vestmannaeyja. Sú lögn varð fyrir skemmdum eftir að akkeri togarans Hugins VE 55 hafnaði á henni í nóvember 2023. Íris hefur áður sagt að kostnaður vegna skemmda í nýju lögninni falli ekki á Vestmannaeyjabæ.
Heimild: RÚV