Lögmannshlíðarkja opnuð á ný – MYNDIR
Lögmannshlíðarkirkja hefur verið tekin í notkun á ný eftir umfangsmikið viðhald og endurbætur sem staðið hafa í rúm tvö ár. Meðal stærstu framkvæmda var að styrkja grunn kirkjunnar sem hafði sigið.
Lögmannshlíðarkirkja hefur verið tekin í notkun á ný eftir umfangsmikið viðhald og endurbætur sem staðið hafa í rúm tvö ár.
Meðal stærstu framkvæmda var að kirkjan var tjökkuð upp og grunnur hennar styrktur, en hún hafði sigið í norðausturhorni. Gólfin voru skafin og pússuð, kirkjubekkirnir teknir upp, hækkaðir og bólstraðir. Þá var kirkjan máluð að innan og gengið frá í kringum glugga til að koma í veg fyrir leka og trekk.
Við endurbæturnar var einnig ráðist í breytingu á prédikunarstólnum. Þrepin upp að stólnum voru fjarlægð og stóllinn færður lítillega aftur, með tilskilinni heimild. Með breytingunni hefur skapast meira og þægilegra rými fyrir athafnir og betra útsýni fyrir kirkjugesti.
Kirkjumálararnir Snorri Guðvarðsson og Kristjana Agnarsdóttir leiddu framkvæmdina og fylgdu eftir verkþáttum. Jenný Karlsdóttir veitti ráðgjöf við gerð nýs altarisdúks sem Viktoría Særún Gestsdóttir heklaði. Jóhann Hjaltdal Þorsteinsson er formaður sóknarnefndar.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Akureyri.net
Heimild: Akureyri.net