„Löggæslan er í fáránlegri stöðu“

Löggæslu á Þórshöfn hefur verið dregið úr eftir að lögreglustöðinni var lokað vegna myglu fyrir tæpu ári. Lítið hefur gerst í húsnæðismálum og stöðugildum lögreglumanna hefur fækkað.

„Löggæslan er í fáránlegri stöðu“
Mynd: needpix.com (CC0)

Löggæslu á Þórshöfn hefur verið dregið úr eftir að lögreglustöðinni var lokað vegna myglu fyrir tæpu ári. Lítið hefur gerst í húsnæðismálum og stöðugildum lögreglumanna hefur fækkað.

„Við höfum ekki orðið vör við neinar framkvæmdir þar eða séð neinar ákvarðanir teknar um hvort eigi að gera við húsnæðið eða leggja það af. Sveitarfélagið getur til dæmis aðstoðað lögregluembættið við að finna húsnæði. Við erum að eignast húsnæði á næstunni sem myndi henta undir lögreglustöð sem dæmi. Við viljum bara fá samtal um þetta, að láta ekki þessa þjónustu drabbast svona niður,“ segir Sigurður Ragnar Kristinsson, formaður byggðarráðs Langanesbyggðar.

Lögreglan hefur aðstöðu í skrifstofuhúsnæði á vegum sveitarfélagsins þar sem hvorki eru fangaklefar né yfirheyrsluherbergi. Einn lögreglumaður sinnir löggæslu á Þórhöfn og Húsavík. Langanesbyggð er stór og víðfeðm og viðbragðstími lögreglu getur verið allt að tvær klukkustundir í góðri færð því að frá Húsavík eru um 150 kílómetrar á Þórshöfn.

„Fyrir örfáum árum voru tveir lögreglumenn í fullu starfi en nú er maður í 50% stöðu á Þórshöfn og 50% stöðu á Húsavík,“ segir Sigurður og bætir við: „Þetta er mjög lifandi samfélag þó að við séum fámenn. Það er mikið um útkall lögreglu og víkingasveitin hefur mætt til okkar óþarflega oft á síðustu árum. Það má segja að löggæslan sé í fáránlegri stöðu í dag. Engin lögreglustöð og maður í hálfu starfi. Það er ekki boðlegt.“

Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri á Norðurlandi eystra, tekur undir áhyggjur Langnesinga. Vandamálið sé tvíþætt og snúi bæði að húsnæði og mönnun. „Ég vil í upphafi segja að ég skil áhyggjur byggðarráðsins í Langanesbyggð. Þetta er auðvitað stórt svæði og það er mikið umleikis og þarna þarf að v

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn