Lögboðin þjónusta þyrfti að víkja eigi Múlaþing að bjarga Valaskjálf
Sveitarstjórn Múlaþings hefur ekki tekið ákvörðun um framtíð samkomusalarins Valaskjálf á Egilsstöðum. Ef sveitarfélagið á að koma að málum þyrfti annað að víkja, þar á meðal lögboðin þjónusta.
Afstaða sveitarstjórnar Múlaþings til framtíðar samkomusalarins Valaskjálf á Egilsstöðum liggur ekki fyrir. Íbúafundur var haldinn á Egilsstöðum í kvöld þar sem sveitarstjóri fór yfir möguleika sveitarfélagsins.
Sveitarfélagið hefur þrjá kosti: að gera ekkert, leigja salinn á tæplega 30 milljónir króna á ári, eða kaupa allt húsið fyrir 750 milljónir króna og flytja bæjarskrifstofurnar þangað. Um 70 manns mættu á fundinn og var samstaða meðal gesta um að halda þyrfti í salinn, enda enginn sambærilegur salur í bænum.
Valaskjálf tekur allt að 450 manns í sæti og er oft vettvangur tónleika, útskrifta, árshátíða, dansleikja og annarrar skemmtunar. Eigendur hafa gefið í skyn að reksturinn standi ekki undir sér. Eftir vatnstjón í vor hefur einnig komið til greina að breyta salnum í smáherbergjahótel.
Forseti sveitarstjórnar Múlaþings, Jónína Brynjólfsdóttir, greindi frá því í sjónvarpsfréttum í kvöld að sveitarfélagið hefði ekki tekið ákvörðun um aðkomu að Valaskjálf. Hún sagði að ef sveitarfélagið ætti að koma að málum þyrfti annað að víkja.
„Það er sveitarstjórnarfundur á miðvikudaginn og við þurfum aðeins að meta bæði hvað kom fram á fundinum í dag og eiga svo áframhaldandi samtal við eigendur og meta stöðuna í framhaldi af því,“ sagði Jónína.
Hún útskýrði að leiga á húsnæðinu myndi þýða einhvers konar þjónustuskerðingu, þar sem fjárhagsramminn leyfði ekki annað. Ef kaupa ætti húsnæðið þyrftu áætlaðar fjárfestingar að víkja, sem gæti falið í sér bið á grunnskóla og viðbyggingu íþróttamannvirkja. „Það er lögboðin þjónusta en þetta er það að vitaskuld ekki,“ sagði Jónína um þá mögulegu þjónustuskerðingu.
Heimild: RÚV