Lög um innviðafélag samþykkt

Alþingi hefur samþykkt ný lög um stofnun innviðafélags sem ætlað er að fjármagna og byggja upp samgöngumannvirki. Frumvarpið var samþykkt með atkvæðum stjórnarliða en stjórnarandstaðan greiddi ekki atkvæði.

Lög um innviðafélag samþykkt
Mynd: Snapwire / Pexels

Alþingi samþykkti í gærkvöld lög um stofnun innviðafélags sem á að fjármagna og byggja upp samgöngumannvirki. Frumvarpið var samþykkt með 34 atkvæðum stjórnarliða en stjórnarandstæðingar greiddu ekki atkvæði um frumvarpið.

Stjórnarliðar lögðu áherslu á samþykkt frumvarpsins til að setja aukinn kraft í vegaframkvæmdir en stjórnarandstæðingar sögðu frumvarpið illa unnið og fela í sér gjaldtöku ofan á skatta sem þegar séu lagðir á ökutæki. Atkvæðagreiðslan um innviðafélagið var síðasta verkefni kvöldfundar á Alþingi í gær sem lauk rétt fyrir klukkan tíu.

Í dag tekur svo við síðasti þingfundadagur Alþingis áður en það fer í leyfi yfir sumarið, nema eitthvað óvænt gerist. Þingfundur hefst klukkan 10:30 í dag og eru 22 mál á dagskrá. Þeirra á meðal eru nokkur þingmannamál stjórnarandstöðunnar sem var samþykkt að taka á dagskrá og afgreiða, svo sem um jarðakaup útlendinga, dreifingu ösku, gildistíma ökuskírteina og stimpilgjald á íbúðarhúsnæði. Einnig eru mörg stjórnarfrumvörp á dagskrá, þar á meðal um eftirlit með hollustuháttum og mengunarvörnum, gjaldtöku háskóla af erlendum nemendum, jöfnunargjald á raforkudreifingu, stuðning við einkarekna fjölmiðla og skipan nefndar til að kanna aðbúnað barna sem voru vistuð á einkaheimilum.

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →