Loftvarnarkerfi í Tehran virkjuð eftir árásir Bandaríkjanna

Bandaríkjaher hefur hafið árásir á Íran í ellefta skipti í röð, meðal annars beint að hernaðarinnviðum. Loftvarnarkerfi voru virkjuð í Tehran og sprengingar urðu í Bushehr.

Loftvarnarkerfi í Tehran virkjuð eftir árásir Bandaríkjanna
Mynd: needpix.com (CC0)

Bandaríkjaher greindi frá því í nótt að árásir hefðu verið gerðar á Íran, elleftu nóttina í röð. Árásunum lauk um klukkan eitt að íslenskum tíma.

Tilgangur árásanna var að veikja getu Írans til að ógna skipaumferð um Hormússund. Meðal skotmarka voru stjórnstöðvar Íranshers, flugskýli, drónageymslur og flutningakerfi.

Samkvæmt upplýsingum frá Bandaríkjaher hafa Íranir ráðist á yfir 30 kaupskip á síðustu þremur mánuðum, sem hefur grafið undan frelsi til siglinga og ógnað lífi sæfarenda. Frá því í byrjun maí hefur Bandaríkjaher aðstoðað um 900 skip við siglingar um Hormússund, og komið um 450 milljónum tunna af olíu í gegnum sundið.

Íranskir ríkismiðlar greina frá því að árásir næturinnar hafi beinst að norðvestur- og suðurhluta landsins. Loftvarnarkerfi við höfuðborgina Tehran hafi verið virkjuð og sprengingar orðið í borginni Bushehr, þar sem kjarnorkuver er staðsett.

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →