Leikskólinn Sunnuás verður rifinn
Leikskólinn Sunnuás í Langholtshverfi verður rifinn og nýtt, stærra hús byggt á lóðinni. Húsið hefur staðið autt í fjögur ár en starfsemi skólans hefur verið í bráðabirgðahúsnæði á lóðinni síðustu þrjú ár.
Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkur hefur samþykkt að leikskólinn Sunnuás í Langholtshverfi verði rifinn og að nýtt, stærra hús verði byggt á lóðinni. Eftir breytinguna verður leikskólinn tíu deilda í stað níu.
Leikskólahúsið hefur staðið autt í fjögur ár. Starfsemi skólans var um tíma í gamla Morgunblaðshúsinu í Kringlunni en hefur verið í bráðabirgðahúsnæði á lóðinni síðustu þrjú ár.
Tvær athugasemdir bárust um breytingu á deiliskipulagi skólans, meðal annars vegna aðkomu að leikskólanum og fjölda bílastæða. Bráðabirgðahúsnæði leikskólans er sagt hafa valdið umferðaröngþveiti í kringum leikskólann og gagnrýnt að bílum hafi verið lagt í göturými og jafnvel inni á lóðum nágranna skólans.
Í svari skipulagsfulltrúa Reykjavíkurborgar kemur fram að deiliskipulagsbreytingarnar séu gerðar til þess að geta byggt upp á ný á lóðinni „með varanlegri lausn fyrir leikskólann og til að geta endurheimt bílastæði á lóð sem eru nú með tímabundinni lausn“. Bílastæði í göturými í nágrenni leikskólans á meðan húsið er í notkun hafi verið tímabundin lausn. Þónokkuð sé af bílastæðum nærri leikskólanum við Laugarásveg, Langholtsveg og Dyngjuveg.
Þá segir í svarinu að þegar nýr leikskóli verði tilbúinn þá endurheimtist bílastæði, meðal annars við Langholtsveg. Gert sé ráð fyrir að bílastæði við leikskólann verði 34-38. „Bílastæðaþörf ætti því að jafnaði að vera leyst innan lóðar leikskólans og ekki er gert ráð fyrir að starfsemi nýti sér bílastæðin í göturými eftir að nýr leikskóli tekur til starfa og tímabundin bygging hverfur frá,“ segir í svari skipulagsfulltrúa.
Breyting á deiliskipulagi lóðarinnar var samþykkt í liðinni viku og vísað til borgarráðs. Borgarstjórnarfundur er í dag.
Heimild: RÚV