Leigjendasamtök á Spáni heimta aðgerðir

Leigjendasamtök á Spáni krefjast aðgerða stjórnvalda vegna húsnæðiskrísu. Mótmæli hafa brotist út víða um land eftir að 87 ára gömul kona var borin út úr íbúð sinni í Madrid vegna vangoldinnar leigu.

Leigjendasamtök á Spáni heimta aðgerðir
Mynd: Jake Fox / Pexels

Helstu leigjendasamtök á Spáni hafa hvatt stjórnvöld til að takast á við húsnæðiskreppu landsins með lagasetningu.

Hávær mótmæli hafa brotist út víða um land í vikunni í kjölfar þess að 87 ára gömul kona, Maricarmen Abascal, var borin út úr íbúð sinni í miðborg Madrídar vegna vangoldinnar leigu. Átta árum áður hafði fasteignafélag keypt húsið sem íbúðin var í, rofið leiguþak sem áður var á henni með því að finna glufu í lögunum og hækkað leiguna úr 500 evrum í 2.650, sem er 430% hækkun.

Atvikið hefur beint kastljósinu að sívaxandi húsnæðiskreppu í landinu í aðdraganda þingkosninga sem haldnar verða á Spáni á næsta ári. Leigjendasamtökin þrýsta nú á minnihlutastjórn Pedros Sanchez að samþykkja aðgerðapakka, sem nefndur hefur verið Maricarmen-tilskipunin, á næsta ríkisstjórnarfundi sem haldinn verður í næstu viku. Meðal aðgerða í pakkanum er sjálfvirk endurnýjun leigusamninga.

Maricarmen, sem jafnan er auðkennd með skírnarnafni sínu, hefur þannig á stuttum tíma orðið að eins konar andliti húsnæðiskreppunnar. Alicia del Rio, talsmaður leigjendasamtaka Madrídar, segir mál hennar vera „síðasta hálmstráið“ en háu húsnæðisverði hefur verið mótmælt um langa hríð. Nú virðist vera að sjóða upp úr hjá almenningi á Spáni.

Síðan Maricarmen var borin út hafa mótmælin gosið upp í fjölda borga, þar á meðal Sevilla, Alicante, Granada og Barselóna. Víða hefur slegið í brýnu á milli mótmælenda og lögreglu, sem hefur jafnvel beitt kylfum og piparúða til að halda aftur af mannfjöldanum.

Spánverjar kenna skammtímaleigulausnum á borð við Airbnb um. Stríður straumur ferðamanna til landsins veldur því að íbúðir eru keyptar upp af fasteignafélögum sem sjá meiri gróða í skammtímaleigu en í langtímaleigu til íbúa landsins.

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn