Launakostnaður borgarinnar 1,2 milljörðum yfir áætlun
Starfsfólki Reykjavíkurborgar hefur fjölgað um 23% á síðustu tíu árum. Á sama tíma hefur íbúum borgarinnar fjölgað um 19%. Þessi fjölgun hefur haft veruleg áhrif á fjárhag borgarinnar.
Laun og launatengd gjöld hækkuðu um 8,4 milljarða króna milli ára og var launakostnaður 1,2 milljörðum króna yfir áætlun. Flestir starfsmenn í B-hluta borgarinnar starfa hjá Orkuveitu Reykjavíkur, eða 677 talsins.
Sjá nánar: vb.is