Landsvirkjun býður út mannvirkjagerð vegna Núpstíflu

Landsvirkjun býður út verkefnið HVM10 – Mannvirkjagerð, sem felst í byggingu Núpstíflu og tilheyrandi mannvirkjum, með skilafresti 20. apríl 2027.

Landsvirkjun býður út mannvirkjagerð vegna Núpstíflu
Mynd: ROMAN ODINTSOV / Pexels

Landsvirkjun býður út verkefnið HVM10 – Mannvirkjagerð, með útboðsnúmerið 2026-35. Skilafrestur er 20. apríl 2027 kl. 14:00.

Verkið felst í byggingu Núpstíflu, þar með talið yfirfallsmannvirkjum með lokum og brúm, fiskvegum, aðrennslisskurði, inntaki, jarðvinnu og undirstöðum fyrir þrýstipípur, stöðvarhúsi, aðgöngugöngum að frárennslissvæði, jöfnunarþró frárennslis, frárennslisgöngum, frárennslisskurði, Ölmóðseyjarstíflu, aðkomuvegum, varanlegri vatnsveitu og tilheyrandi vél- og rafbúnaði í byggingum og á framkvæmdasvæðinu, þar á meðal lögnum, strengjum og leguleiðum.

Einnig innifalast ýmis vinnusvæðismannvirki og aðstaða sem verða nýtt af öðrum verktökum samkvæmt öðrum samningum. Nánari upplýsingar um verkefnið og umfang er að finna í útboðsgögnum nr. 2026-35 á útboðsvef Landsvirkjunar.

Útboðið er birt á: utbodsvefur.is

Deila Facebook X LinkedIn