Landsnet flýtir uppbyggingu á Hryggstekk: Orkuflutningar til Austurlands aukast um 50MW
Jarðvegsframkvæmdir vegna nýs og mikilvægs tengivirkis Landsnets á Hryggstekk í Skriðdal hefjast í sumar, en verkefninu hefur verið flýtt til að efla raforkuöryggi og flutningsgetu á Austurlandi. Tengivirkið á að vera komið í gagnið á næsta ári, fyrr en upphaflega var áætlað.
Framkvæmdin felur í sér byggingu nýs 220 kV tengivirkis sem tengist Fljótsdalslínum 3 og 4. Útboði vegna jarðvinnu er lokið og hefjast þær í vor, með áætluðum verklokum í nóvember. Jafnframt stendur yfir útboð á byggingu spennahúss og rofahúss, sem verða tilbúin í september 2027. Rafbúnaður verður síðan settur upp á næsta ári og tengivirkið spennusett fyrir árslok 2027.
Með nýja tengivirkinu er ætlað að rjúfa hindranir í raforkukerfinu milli Austur- og Norðurlands, sem mun auka orkuflutning til Austurlands um 50 MW. Þetta er lykilframkvæmd sem mun nýta betur aðrar nýlegar fjárfestingar í innviðum á svæðinu.
Sjá nánar: austurfrett.is