Landfylling á Kársnesi afhent fyrir brúarsmíði
Áfangaúttekt er lokið á gerð landfyllinga og sjóvarna á Kársnesi í Kópavogi og hafa verktakarnir Ístak og Per Aarsleff AS formlega fengið lykilinn að þessum hluta framkvæmdasvæðisins til að hefja undirbúning brúarsmíði. Betri samgöngur gerðu í nóvemb
Áfangaúttekt er lokið á gerð landfyllinga og sjóvarna á Kársnesi í Kópavogi og hafa verktakarnir Ístak og Per Aarsleff AS formlega fengið lykilinn að þessum hluta framkvæmdasvæðisins til að hefja undirbúning brúarsmíði. Betri samgöngur gerðu í nóvember samning um smíði Fossvogsbrúar, en framkvæmdir við landfyllingar hófust í janúar í fyrra. Vinna við landfyllingar og sjóvarnir stendur enn yfir Reykjavíkurmegin, en áætlað er að þeim ljúki síðla vors.
Fossvogsbrúin Alda verður 270 metra löng og tengir vesturhluta Kópavogs við Reykjavík. Brúin er hluti af fyrstu lotu Borgarlínunnar. Framkvæmdir við gerð landfyllinga og sjóvarna hafa gengið vel, en þær verða um 2,3 hektarar auk 0,4 hektara á landi. Vegagerðin samdi í fyrra við Gröfu og grjót um gerð landfyllinganna og hefur haft umsjón með framkvæmdinni. Með úttektinni og afhendingunni í gær hafa Betri samgöngur tekið við umsjón framkvæmdarinnar.
Fulltrúar frá Ístaki, Vegagerðinni, Norconsult, Betri samgöngum og Verkefnastofu Borgarlínu voru viðstaddir áfangaúttektina á landfyllingunni á Kársnesi. Með áfangaúttektinni eru öll gæðagögn, svo sem mælingar, prófanir og innmælingargögn lögð fram. Við tekur undirbúningsvinna Ístaks og Per Aarsleff AS fyrir brúarsmíði, en ráðgert er að þær framkvæmdir hefjist í vor. Fyrirhugað er að Fossvogsbrúin Alda verði tilbúin til notkunar haustið 2028 fyrir almenningssamgöngur, gangandi og hjólandi, auk slökkviliðs, lögreglu og sjúkrabíla.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Borgarlínan
Heimild: Borgarlínan