Lagði legstein á lóð BSO
Raftónlistarmaðurinn Áki Frostason, einnig þekktur sem Pitenz, setti legstein á gömlu lóð Bifreiðastöðvar Oddeyrar (BSO) á Akureyri á föstudaginn. BSO þurfti að víkja af lóðinni eftir 70 ára starfsemi.
Áki Frostason, sem margir þekkja sem raftónlistarmanninn Pitenz, setti á föstudaginn legstein á gömlu lóð Bifreiðastöðvar Oddeyrar (BSO) við Strandgötu á Akureyri. BSO þurfti að víkja af lóðinni eftir 70 ára starfsemi, en reksturinn tók Hreyfill við þann 1. júní. Flutningar BSO hafa verið umdeildir og lengi í farvatninu, en fyrirtækið höfðaði meðal annars mál á hendur Akureyrarbæ.
Legsteinninn er staðsettur á miðri lóðinni, við gatnamót Drottningarbrautar og Strandgötu. Blóm hafa þegar verið lögð við legsteininn og hvetur Áki vegfarendur til að leggja blóm á leiðið ef þeir vilja minnast BSO.
Hús BSO var flutt í Jólagarðinn þann 14. júní. Ekki hefur verið ákveðið hvernig húsið verður nýtt, en þar er nú staðsett Jólahúsið sem laðar að sér marga ferðamenn á hverju ári.
Heimild: RÚV