Kröfu um auglýsingu og umsagnarfrest starfsleyfa aflétt

Kröfum um auglýsingar og umsagnarfresti starfsleyfa hefur verið aflétt vegna breytinga á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir. Breytingin miðar að því að einfalda ferla fyrir fyrirtæki og stofnanir.

Kröfu um auglýsingu og umsagnarfrest starfsleyfa aflétt
Mynd: pixabay.com / Pexels

Kröfum um auglýsingar á starfsleyfum og fjögurra vikna umsagnarfresti hefur verið létt af öllum flokkum atvinnustarfsemi sem heilbrigðisnefndir gefa út starfsleyfi fyrir. Þetta nær meðal annars til gististaða, brugghúsa, skólahúsnæðis, sund- og baðstaða, dvalarheimila, æfingasvæða slökkviliðs, sjúkrastofnana og þvottahúsa.

Breytingin er afrakstur frumvarps umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um breytingar á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, sem samþykkt var á Alþingi 19. júní. Ráðherra hefur nú fylgt lagabreytingunni eftir með breytingu á reglugerð. Heimildin er tímabundin þar sem heilbrigðisnefndir sveitarfélaga verða lagðar niður um áramót. Með þessu er heilbrigðisnefndum heimilt að gefa út eða breyta starfsleyfum án þess að þurfa að auglýsa tillögu eða drög að breytingu og veita frest til athugasemda.

Heilbrigðisnefndum er þó áfram heimilt að viðhafa slíka málsmeðferð ef ætla má að starfsemin hafi veruleg grenndaráhrif, til dæmis ef hún fellur undir lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Um áramót taka gildi breytingar á framkvæmd heilbrigðiseftirlits þar sem útgáfa starfsleyfa færist til Umhverfis- og orkustofnunar, sem verður ekki heldur skylt að auglýsa starfsleyfi með fjögurra vikna fyrirvara.

„Þetta er enn eitt skrefið sem núverandi ríkisstjórn tekur til þess að vinda ofan af íþyngjandi kröfum sem lagðar voru á fólk og fyrirtæki á undanförnum árum,“ segir Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →