„Klukkan heldur bara áfram að tifa“

Formaður VR gagnrýnir ríki og sveitarfélög fyrir að standa ekki við kjarasamninga. Hann bendir á að verðbólga og vextir séu kjarninn í kjarasamningum og lífskjörum.

„Klukkan heldur bara áfram að tifa“
Mynd: Magda Ehlers / Pexels

Formaður VR segir að ríki og sveitarfélög hafi ekki staðið við skuldbindingar sínar varðandi kjarasamninga. Hann bendir á að forsendur samninganna hafi brostið og að verðbólga verði yfir 4,7% við næstu verðbólgumælingu, sem opni uppsagnarákvæði samninganna.

„Klukkan heldur bara áfram að tifa,“ segir Halla Gunnarsdóttir formaður VR. „Annars vegar í átt að vísitölumælingunni 27. ágúst - hins vegar í átt að stýrivaxtaákvörðun sem verður 19. ágúst. Í þessum tveimur þáttum, verðbólgunni og vöxtunum liggur kjarninn í kjarasamningum og lífskjörum almennings.“

Fátt virðist geta komið í veg fyrir að verðbólga, sem nú mælist 5,3%, verði yfir 4,7% viðmiði kjarasamninganna, svokallaðra stöðugleikasamninga, þann 1. september þegar heimild er til að endurskoða þá.

Síðustu stóru kjarasamningarnir á almennum markaði voru gerðir í mars 2024 og eru gjarnan kallaðir stöðugleikasamningar. Þeir byggja á samstöðu atvinnulífsins, stjórnvalda og launafólks til að auka kaupmátt og lækka vexti og verðbólgu, sem þá var 6,6%.

Til að ná þessum markmiðum féllst launþegahreyfingin á hóflegar launahækkanir, undir verðbólgu. Samningarnir kváðu á um 3,5% launahækkun og í þeim var samið um að hægt væri að endurskoða þá tvisvar á samningstímanum á svokölluðum skoðunarpunktum.

Fyrri skoðunarpunkturinn var 1. september 2025, en þá var miðað við að verðbólga yrði 4,95% eða minni. Þá þótti ekki tilefni til endurskoðunar, en forsendunefnd tekur afstöðu til þess.

Síðari skoðunarpunkturinn er 1. september næstkomandi og þá á að horfa til 12 mánaða verðbólgu í lok ágúst. Hafi ársverðbólga mælst yfir 4,7% teljast forsendur samningsins brostnar.

Forsendunefndin, sem tekur afstöðu til þess hvort endurskoða eigi kjarasamninga, er samstarfsnefnd fulltrúa launafólks og atvinnulífsins.

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn