„Klakahöllin“ heyrir sögunni til upp úr áramótum

Fjarðabyggð hefur samið við fyrirtækið Launafl um kaup og uppsetningu á nýjum loftræstibúnaði í Fjarðabyggðarhöllinni á Reyðarfirði. Verkinu á að ljúka á fyrstu dögum nýs árs og mun það koma alvöru upphitun inn í húsið, sem hefur verið kallað Klakahö

„Klakahöllin“ heyrir sögunni til upp úr áramótum
Mynd: Braggi.is

Fjarðabyggð hefur samið við fyrirtækið Launafl um kaup og uppsetningu á nýjum loftræstibúnaði í Fjarðabyggðarhöllinni á Reyðarfirði. Verkinu á að ljúka á fyrstu dögum nýs árs og mun það koma alvöru upphitun inn í húsið, sem hefur verið kallað Klakahöllin vegna kulda. Tilboð Launafls hljóðaði upp á 92,4 milljónir króna, sem er tæplega 8% undir upphaflegri kostnaðaráætlun upp á 100 milljónir.

Samningurinn var undirritaður af Jónu Árnýju Þórðardóttur, bæjarstjóra Fjarðabyggðar, og Magnúsi Hilmari Helgasyni, framkvæmdastjóra Launafls. Tvö kerfi verða sett upp sem munu vinna saman að upphitun, en aðalkerfið sér einnig um loftskipti. Til að hýsa hluta af nýja búnaðinum verður byggð lítil viðbygging við norðausturhorn hallarinnar. Gert er ráð fyrir að uppsetning taki aðeins tvær til þrjár vikur.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Austurfrétt

Heimild: Austurfrétt

Deila Facebook X LinkedIn