Kjarnaborun að hefjast á Landeyjasandi
Undirbúningi fyrir rannsóknarholu á Landeyjasandi er lokið og stendur til að hefja kjarnaborun á næstu dögum. Borunin er liður í rannsóknum á möguleikum á jarðgöngum milli lands og Vestmannaeyja.
Undirbúningi fyrir rannsóknarholuna EG-02 á Landeyjasandi er lokið og stendur til að hefja fóðrun og kjarnaborun á næstu dögum. Kjarnaborinn Karl Prins er kominn á sinn stað á svæðinu. Rannsóknarholan er hluti af jarðfræðirannsóknum sem miða að því að kanna hvort raunhæft sé að ráðast í gerð jarðganga milli lands og Vestmannaeyja.
Fyrsta skrefið í boruninni verður að setja niður um 40 metra langa fóðrun til að tryggja stöðugleika borholunnar vegna lauss sands í efstu jarðlögum. Að því loknu tekur við kjarnaborun, en gert er ráð fyrir að holan verði boruð niður á allt að 300 metra dýpi. Markmiðið er að ná upp samfelldum kjarnasýnum úr jarðlögunum undir sandinum, sem veita mikilvægar upplýsingar um gerð, styrk og eiginleika berglaganna.
Haraldur Pálsson, framkvæmdastjóri Eyjaganga, segir að borunin muni veita áður óþekkt gögn um jarðlögin á svæðinu, sem færi verkefnið nær raunhæfu mati á jarðgöngum til Eyja. Þótt talið sé líklegt að mögulegt gangaop yrði staðsett ofar í landi, er mikilvægt að taka kjarnasýni sem næst strandlínunni til að fá gleggsta mynd af jarðlögum á þeirri leið sem hugsanleg göng myndu liggja.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Eyjafréttir
Heimild: Eyjafréttir