Kínverskt skipafélag hefur reglulegar siglingar um Norðurslóðaleiðina

Kínverska skipafélagið Sea Legend hefur hafið reglulegar vikulegar siglingar með gámaskip um Norður-Íshafið til Evrópu. Leiðin styttir flutningatíma verulega miðað við siglingar um Súes-skurðinn.

Kínverskt skipafélag hefur reglulegar siglingar um Norðurslóðaleiðina
Mynd: needpix.com (CC0)

Kínverska skipafélagið Sea Legend hefur hafið reglulegar vikulegar siglingar með gámaskip um Norður-Íshafið til Evrópu. Ætlunin er að halda siglingum áfram fram í október.

Sea Legend sigldi í fyrra gámaskipum í tilraunaskyni sömu leið, frá kínversku höfninni Ningbo meðfram ströndum Rússlands til Felixstowe á Englandi. Ferðin tók tuttugu daga, sem er helmingur þess tíma sem tekur að sigla frá Kína til Evrópu um Súes-skurðinn.

Kínverjar kynntu árið 2018 fyrirætlanir sínar um fjölgun ferða um norðurslóðir undir heitinu Silkileiðin um Norðurpólinn. Danska skipafélagið Maersk sigldi sömu leið árið 2018 og fjöldi skipa sem sigldu Norðursjávarleiðina jókst í 25 á síðasta ári, samanborið við 15 árið áður, samkvæmt upplýsingum tryggingafélagsins Allianz Commercial.

Sea Legend er fyrsta skipafélagið sem hefur reglulegar siglingar um Norðurslóðaleiðina, sem standa yfir í sjö vikur að þessu sinni, eða til 3. október. Þetta samsvarar nokkurn veginn þeim tíma sem unnt er að sigla leiðina án aðstoðar ísbrjóta.

Fyrirætlanirnar hafa vakið áhyggjur um að skipaferðirnar flýti fyrir bráðnun íss á norðurslóðum. Mörg stór skipafélög hafa undirritað yfirlýsingu bandarísku umhverfisverndarsamtakanna Ocean Concervancy um að forðast flutningaleiðir um norðurslóðir vegna hættu sem stafað geti af náttúrunni. Sérfræðingar telja þó að til framtíðar verði Norðurslóðaleiðin mikilvæg fyrir flutninga.

Skip Sea Legend munu á þessum tíma flytja innan við hálft prósent þeirra vara sem vikulega berast frá Asíu til Evrópu og samtals um 0,1 prósent af árlegum flutningum. Gámaskipið Dubaiturninn leggur upp frá Ningbo til Felixtowe annað kvöld, að sögn hafnarstarfsmanns sem AFP-fréttaveitan ræddi við.

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn