Styrkás kaupir Malbikstöðina og styrkir stöðu sína í innviðauppbyggingu
Styrkás hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. og lóðum félagsins á Esjumelum.
Styrkás hf. hefur náð samkomulagi um kaup á Malbikstöðinni ehf., sem sérhæfir sig í framleiðslu og útlögn malbiks fyrir vegi, göngustíga og bílastæði. Með kaupunum verður Malbikstöðin fimmta kjarnasvið Styrkás og mun Vilhjálmur Þór Matthíasson, seljandi og stofnandi Malbikstöðvarinnar, verða einn af stærri hluthöfum í Styrkás. Viðskiptin eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins.
Malbikstöðin, sem á rætur að rekja til ársins 2004, rekur malbikstöð á Esjumelum og býr yfir öflugum tækjakosti og sérhæfðu starfsfólki. Félagið verður rekið sem sjálfstætt félag innan samstæðu Styrkás. Kaupin munu styrkja þjónustu Styrkás við sveitarfélög, verktaka og aðra viðskiptavini í uppbyggingu og viðhaldi samgönguinnviða.
Rekstrartekjur Malbikstöðvarinnar námu 2,8 milljörðum króna árið 2025 og rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) nam 779 milljónum króna. Athafnasvæði félagsins á Esjumelum skapar tækifæri til að sameina starfsemi og veitir svigrúm fyrir framtíðaruppbyggingu Styrkás samstæðunnar. Tilgangur viðskiptanna er að efla þjónustu Styrkás við uppbyggingu innviða og mæta vaxandi þörf fyrir malbikun vega á Íslandi.