Kaupsamningar hafa sjaldan verið jafnfáir

Kaupsamningar um íbúðarhúsnæði voru færri í maí en í nærri áratug. Fasteignamarkaðurinn er rólegur og framboð íbúða hefur aukist.

Kaupsamningar hafa sjaldan verið jafnfáir
Mynd: Mathias Reding / Pexels

Kaupsamningar um íbúðarhúsnæði voru færri í maí en í nærri áratug. Fasteignamarkaðurinn er rólegur og framboð íbúða hefur aukist, samkvæmt nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar. Tíminn sem tekur að selja núverandi framboð hefur lengst töluvert frá áramótum.

Á síðustu fimm árum hefur aukist eftirspurn eftir ódýrari íbúðum, sem stofnunin rekur til versnandi lánskjara og hertra skilyrða fyrir lántökum. Nær öll ný fasteignalán í apríl, eða 95 prósent, voru á föstum vöxtum. Leigjendum hefur fjölgað lítillega undanfarna mánuði, en þó hefur fækkað ungmennum í foreldrahúsum og fjölgað þeim sem búa í leiguhúsnæði.

Í byggingariðnaði sjást merki um samdrátt. Nýskráningum fyrirtækja hefur fækkað, gjaldþrotum fjölgað og atvinnuleysi í greininni er talið um sex prósent. Atvinnuleysi í hagkerfinu í heild er um fjögur prósent.

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →