Kastað til bata í Langa á Mýrum
Verkefnið „Kastað til bata“ fór fram við Langá á Mýrum um liðna helgi, en þetta er endurhæfingarverkefni fyrir konur sem hafa greinst með brjóstakrabbamein. Verkefnið er á vegum Brjóstaheilla – Samhjálpar kvenna, Krabbameinsfélagsins og Stangaveiðifé
Verkefnið „Kastað til bata“ fór fram við Langá á Mýrum um liðna helgi, en þetta er endurhæfingarverkefni fyrir konur sem hafa greinst með brjóstakrabbamein. Verkefnið er á vegum Brjóstaheilla – Samhjálpar kvenna, Krabbameinsfélagsins og Stangaveiðifélags Reykjavíkur. Konunum er boðið í veiðiferð þar sem þær fá meðal annars kennslu í fluguköstum og þjálfun í að vaða yfir ár. Tumi fylgdist með því að allar konurnar kæmust klakklaust yfir ána.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Skessuhorn
Heimild: Skessuhorn