Kanna uppbyggingu hreinsistöðvar neðan við suðurbæinn

Orkuveita Húsavíkur kannar nú möguleika á uppbyggingu hreinsistöðvar við fráveituútrás í Þorvaldsstaðargili. Verkefnið miðar að því að efla fráveitumál á hagkvæman og umhverfisábyrgan hátt.

Kanna uppbyggingu hreinsistöðvar neðan við suðurbæinn
Mynd: Braggi.is

Orkuveita Húsavíkur vinnur nú að kostnaðar- og tæknimati vegna mögulegrar uppbyggingar tveggja eða þriggja þrepa hreinsistöðvar við fráveituútrás í Þorvaldsstaðargili, sunnan Húsavíkur.

Verkefnið er hluti af langtímaáætlun Orkuveitu Húsavíkur um að efla fráveitumál á starfssvæði veitunnar með hagkvæmum og umhverfislega ábyrgum hætti. Stjórn Orkuveitu Húsavíkur hefur falið Benedikt Þór Jakobssyni, rekstrarstjóra, að vinna kostnaðarmat vegna verkefnisins.

Til skoðunar er að reisa hreinsistöð á umræddum stað þar sem fyrir er fráveituútrás sem ekki er tengd bæjarkerfinu. Markmiðið er að kanna hagkvæmar og raunhæfar leiðir til að mæta framtíðarkröfum um fráveituhreinsun.

Vinna við matið er enn á frumstigi og því liggur staðfest kostnaðaráætlun ekki fyrir. Ætlunin er að bera saman mismunandi útfærslur áður en ákvörðun verður tekin um framhald verkefnisins og hvort það fari á framkvæmdaáætlun 2027 eða 2028.

Ákvörðun um hvort tveggja eða þriggja þrepa hreinsun verði fyrir valinu mun ráðast af kostnaðarmati, tæknilegri greiningu og þeim kröfum sem gerðar verða til hreinsunar fráveituvatns. Horft verður til stofn- og rekstrarkostnaðar, umhverfisáhrifa og framtíðarkrafna.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Víkublaðið

Heimild: Víkublaðið

Deila Facebook X LinkedIn