Kaldur byggingamarkaður kólnar enn meira

Ný greining frá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) sýnir að íbúðum í byggingu hefur fækkað um 11% frá mars og óseldar íbúðir eru nú tæplega 1.900, sem er 85% aukning frá því í fyrra.

Kaldur byggingamarkaður kólnar enn meira
Mynd: Airam Dato-on / Pexels

Íbúðum í byggingu hefur fækkað um 11% frá mars og eru nú tæplega 1.900 nýjar íbúðir tilbúnar en óseldar. Þetta er 85% aukning frá því í fyrra.

Þetta kemur fram í nýrri greiningu Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS) sem kynnt var þriðjudaginn 22. september. Skýrslan var kynnt á fundi og er hægt að horfa á upptöku á vef HMS.

„Ef maður horfir á þau verkefni sem eru í startholunum þá fáum við einhverja mynd af markaðnum eins og hann verður eftir nokkur ár og þar sjáum við viðvörunarmerki,“ segir Jónas Már Gunnarsson, yfirhagfræðingur HMS. Hann bendir á að óseldar íbúðir safnist upp og margar hafi verið til sölu í meira en ár.

„Þarna held ég að skipti hvernig þessar íbúðir eru og hvort þær hafi verið byggðar fyrir þann markað sem er til staðar.“

HMS telur allar íbúðir í byggingu tvisvar á ári, í mars og í september. Talningin sýnir mikinn samdrátt á byggingamarkaði frá því í vor.

Aldrei færri nýjar framkvæmdir og aldrei fleiri tómar íbúðir

HMS byrjaði að telja íbúðir í byggingu árið 2021. Síðan þá hafa nýjar framkvæmdir aldrei verið færri og aldrei hafa jafnmargar nýjar íbúðir staðið tómar.

Íbúðir á fyrstu þremur byggingar- eða framvindustigum hafa heldur aldrei verið færri. Á síðustu sex mánuðum hófst vinna við byggingu um 770 íbúða, sem er helmingi minna en á sex mánuðunum þar á undan. Í mörgum tilfellum var framkvæmdum hætt á fyrsta byggingarstigi, þegar aðeins jarðvinna er lokið en engar eiginlegar byggingarframkvæmdir hafnar.

Byggingamarkaðurinn hefur kólnað hratt frá því í vor, og var hann þó allkaldur fyrir.

Ef vextir haldast háir versnar staðan bara.

Mest hefur kólnunin verið í nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Þar hefur nýjum framkvæmdum fækkað mest og íbúðum sem ekki seljast hefur líka fjölgað hlutfallslega hraðast.

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn