Kaldárhöfðaveita yrði í lykilhlutverki næstu 100 árin
Uppbygging Kaldárhöfðaveitu á Suðurlandi gæti tryggt vatnsöryggi fyrir þrjú sveitarfélög næstu 100 árin. Fyrstu vísbendingar af tilraunaholu eru jákvæðar og beðið er eftir dæluprófunum.
Eitt stærsta vatnsöflunarverkefni á Suðurlandi, Kaldárhöfðaveita, miðar að því að byggja upp sameiginlega vatnsveitu fyrir Grímsnes- og Grafningshrepp, Sveitarfélagið Árborg og Flóahrepp. Verkefnið felur í sér möguleika á að flytja allt að 500 sekúndulítra af köldu neysluvatni, sem myndi gera Kaldárhöfðaveitu að langstærstu vatnsveitu á Suðurlandi og lykilinnviði næstu 100 árin.
Borun tilraunaholu við Kaldárhöfða lauk í maí og gekk vel. Fyrstu vísbendingar gefa góð fyrirheit um að holan geti skilað miklu vatni. Fjóla St. Kristinsdóttir, sveitarstjóri, segir að þær gefi tilefni til bjartsýni og bendi til þess að umtalsvert magn af köldu grunnvatni kunni að vera á Kaldárhöfða. Verkefnið er þó enn á rannsóknarstigi og endanlegar ákvarðanir verða teknar á grundvelli mælinga, faglegs mats og nauðsynlegrar leyfisvinnu.
Nú er beðið eftir dælu á svæðið til að hefja dæluprófanir. Þær munu gefa skýrari mynd af afkastagetu vatnsbólsins og ráða miklu um næstu skref verkefnisins. Kaldárhöfði er talinn sérstaklega áhugaverður kostur vegna þekktra vatnsmikilla linda og jarðfræðilegra aðstæðna sem benda til öflugs grunnvatnsstraums undir hrauninu. Um er að ræða víðfeðmt og lítt raskað svæði þar sem aðstæður til að tryggja vatnsvernd eru góðar. Fjóla St. Kristinsdóttir telur Kaldárhöfðaverkefnið eitt mikilvægasta sameiginlega innviðaverkefni sem sveitarfélög á Suðurlandi hafa ráðist í. Ef niðurstöður dæluprófananna verða jákvæðar er ekki aðeins verið að tryggja vatnsöryggi fyrir sveitarfélögin þrjú, heldur einnig að leggja grunn að áframhaldandi uppbyggingu samfélags og atvinnulífs á Suðurlandi til næstu áratuga.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Sunnlenska
Heimild: Sunnlenska