Kadeco í meiriháttar tiltekt á Tæknivöllum – frestur til loka september

Kadeco á Ásbrú hefur hafið umfangsmikla tiltekt á Tæknivöllum til að hreinsa opið landsvæði utan skráðra lóða. Aðilar sem hafa geymt efni án leyfis hafa frest til loka september til að fjarlægja það.

Kadeco í meiriháttar tiltekt á Tæknivöllum – frestur til loka september
Mynd: Braggi.is

Kadeco á Ásbrú hefur boðað til umfangsmikillar tiltektar á Tæknivöllum í haust. Markmiðið er að hreinsa opið landsvæði utan skráðra lóða þar sem engir þinglýstir leigusamningar eru í gildi.

Tiltektin felur í sér fjarlægingu alls efnis, búnaðar, tækja og úrgangs sem geymdur er án skriflegs leyfis frá Kadeco. Aðilar sem hafa geymt efni án leyfis hafa frest út septembermánuð til að fjarlægja það sem þeim tilheyrir.

Eftir þann frest mun Kadeco, í samstarfi við hreinsunaraðila, fjarlægja og farga öllu efni og úrgangi sem eftir situr. Sérstakt ferli verður í gangi vegna númerslausra bílflaka, sem verða fluttir á sérstakt söfnunarsvæði þar sem eigendur geta vitjað þeirra. Ef ekki verður vitjað þeirra, verða þeir afskráðir og fargað hjá viðurkenndri móttökustöð í samstarfi við viðeigandi yfirvöld.

Þessi tiltekt er liður í áformum Kadeco og Reykjanesbæjar um að þróa Tæknivelli sem fyrirmyndar athafnasvæði. Nýlega var samþykkt nýtt deiliskipulag fyrir svæðið og lóðarréttindi á alls 19 lóðum hafa verið auglýst til sölu. Á næsta ári verður hafist handa við endurnýjun fráveitu og fleiri lóðir gerðar byggingarhæfar.

Samúel Torfi Pétursson, þróunarstjóri Kadeco, segir að tiltektin sé ætluð til að slá tóninn fyrir framtíðarþróun svæðisins.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Víkurfréttir

Heimild: Víkurfréttir

Deila Facebook X LinkedIn