Þakíbúð við Bryggjugötu 6 auglýst fyrir 1,2 milljarða
Jónas Hagan Guðmundsson, einn forsvarsmanna Já til að sjá, setti glæsilega þakíbúð sína við Bryggjugötu 6 í Reykjavík á sölu. Íbúðin var auglýst hjá Knight Frank á Jersey fyrir 10 milljónir Bandaríkjadala, sem jafngildir um 1,2 milljörðum króna, en auglýsingin hefur nú verið tekin út.

Samkvæmt þinglýstum gögnum hvílir á eigninni tryggingarbréf að fjárhæð 832,2 milljónir króna, gefið út í desember 2023 til tryggingar skuldbindingum samkvæmt lánasamningi við bandarískt félag. Íbúðin er 357 fermetrar og var keypt fokheld af Dreisam ehf., sem var þá í eigu Jónasar, af Austurhöfn ehf. í mars 2022 fyrir 620 milljónir króna.
Í desember 2023 afsalaði Dreisam ehf. íbúðinni til Jónasar fyrir 762.296.132 krónur. Sama dag gaf Jónas út tryggingarbréf vegna eignarinnar til tryggingar skuldbindingum samkvæmt lánasamningi við A Edward Schmidt Holdings LLC, félag skráð í Delaware í Bandaríkjunum. Félagið er í eigu Edward Mac Gillivray Schmidt, fyrrum meðeiganda Jónasar í Vörðu Capital ehf. og núverandi meðeiganda hans í Dreisam ehf.
Í sölulýsingunni kom fram að íbúðin væri fullbúin með vönduðum efnum, þar á meðal ítölskum steini, sérsmíðuðum innréttingum og viðargólfum. Fasteignasalar sem Viðskiptablaðið ræddi við telja að ásett verð hafi verið fullhátt miðað við aðstæður á íslenskum fasteignamarkaði, en að íbúðin gæti selst fyrir um einn milljarð króna á ágætum degi.