JE Vélaverkstæði vill fjárfesta í bátalyftu á Siglufirði
Uppbygging á sérstakri aðstöðu til upptöku og sjósetningar stærri báta við Siglufjarðarhöfn er til skoðunar eftir erindi frá JE Vélaverkstæði. Fyrirtækið vill fjárfesta í bátalyftu og óskaði eftir afstöðu sveitarfélagsins til áformanna, en lyftari ve
Uppbygging á sérstakri aðstöðu til upptöku og sjósetningar stærri báta við Siglufjarðarhöfn er til skoðunar eftir erindi frá JE Vélaverkstæði. Fyrirtækið vill fjárfesta í bátalyftu og óskaði eftir afstöðu sveitarfélagsins til áformanna, en lyftari verkstæðisins við höfnina hefur nú 40 tonna lyftigetu.
Framkvæmda-, hafna- og veitunefnd Fjallabyggðar tók jákvætt í erindið á fundi sínum og fól skipulags- og framkvæmdasviði að taka saman kostnaðarmat vegna nauðsynlegra mannvirkjagerða á hafnarsvæðinu. Stefnt er að því að leggja kostnaðarmatið fyrir á næsta fundi nefndarinnar áður en ráðist verður í frekari ákvarðanatöku. Guðrún Sif Guðbrandsdóttir vék af fundi við afgreiðslu málsins.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Trölli
Heimild: Trölli