Jarðvinna fyrir Menningarhús í Skagafirði við Faxatorg á Sauðárkróki

Sveitarfélagið Skagafjörður býður út jarðvinnu fyrir Menningarhús í Skagafirði, með skilafrest til 22. maí 2026.

Jarðvinna fyrir Menningarhús í Skagafirði við Faxatorg á Sauðárkróki
Mynd: Alimurat Üral / Pexels

Sveitarfélagið Skagafjörður hefur auglýst útboð á jarðvinnu fyrir Menningarhús í Skagafirði, númer 46360004. Verkið snýr að jarðvinnu fyrir nýbyggingu sunnan við núverandi Safnahús við Faxatorg á Sauðárkróki. Framkvæmdir fela í sér uppgröft á óburðarhæfum jarðvegi sem verður fjarlægður og fluttur á viðurkenndan losunarstað. Að loknum uppgreftri skal komið fyrir burðarhæfri fyllingu, til undirbúnings frekari byggingarframkvæmdum. Auk þess nær verkið til jarðvegsskipta vegna framkvæmda á lóð menningarhússins. Hluti jarðvatnslagna vegna hússins er innifalinn í verkinu, sem og gerð heimæða fyrir fráveitu inn á lóð hússins. Sérstakar kröfur eru gerðar um hæfni og reynslu bjóðenda. Helstu magntölur eru gröftur á lausum jarðvegi u.þ.b. 7300 m3, fyllingar u.þ.b. 7800 m3 og fráveitulagnir 280m. Útboðsgögn verða afhent gjaldfrjálst á rafrænu formi frá og með 5. maí 2026. Óska skal eftir útboðsgögnum í tölvupósti á netfangið stod@stodehf.is. Áætlað er að framkvæmdir hefjist í lok maí 2026 og verkinu í heild skal að fullu lokið eigi síðar en 31. júlí 2026. Skilafrestur er til 22. maí 2026 kl. 12:59 og opnun tilboða fer fram 22. maí 2026 kl. 13:00.

Útboðið er birt á: utbodsvefur.is

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →