Jarðvegsvinna á Egilsstaðaflugvelli - Markaðskönnun
Isavia Innanlandsflugvellir ehf. kannar áhuga verktaka vegna stækkunar á Egilsstaðaflugvelli. Verkið felur í sér nýja akbraut og færslu á flugvallargirðingu.
Isavia Innanlandsflugvellir ehf. hyggst kanna áhuga, getu og sjónarmið verktaka á markaðnum vegna fyrirhugaðrar stækkunar á Egilsstaðaflugvelli. Markaðskönnunin miðar að því að afla upplýsinga um áhuga, þekkingu og getu markaðarins áður en ráðist er í gerð útboðsgagna.
Breytingin felst í að ný akbraut er afmörkuð austanvert við norðurenda núverandi flugbrautar. Um er að ræða allt að 1000 m langa og allt að 34 m breiða akbraut meðfram núverandi flugbraut vallarins og tengingu við hana. Flugvallargirðingu er hliðrað til austurs á um 700 m löngum kafla þannig að flugvallarsvæði innan girðingar stækkar um 4,5 hektara.
Svörum við spurningum og öðrum gögnum skal skila í gegnum útboðsvef Isavia eigi síðar en miðvikudaginn 11. maí 2026 kl. 12:00. Útboðsnúmer er M26003.