Jarðskjálftahrina hefur ekki haft áhrif á rekstur Hellisheiðarvirkjunar
Jarðskjálftahrina hefur ekki haft áhrif á rekstur Hellisheiðarvirkjunar, þrátt fyrir að stærsti skjálftinn hafi mælst 4,5 að stærð. Engin röskun hefur orðið á starfseminni eða niðurdælingu virkjunarinnar.
Jarðskjálftahrina hefur ekki haft áhrif á rekstur Hellisheiðarvirkjunar, þrátt fyrir að stærsti skjálftinn hafi mælst 4,5 að stærð klukkan 13:45 í dag. Skjálftinn fannst vel í virkjuninni en olli engri röskun á starfseminni.
Engar breytingar hafa verið gerðar á rekstri eða niðurdælingu Hellisheiðarvirkjunar undanfarna daga. Jarðskjálftar og skjálftahrinur eru ekki óalgengar á þessu svæði og varð sambærileg hrina þar í júní árið 2024. Samkvæmt mati jarðvísindamanna bendir ekkert til annars en að um náttúrulega skjálftavirkni sé að ræða.
Orka náttúrunnar hefur verið í sambandi við Veðurstofu Íslands og mun áfram fylgjast náið með framvindu mála.
Heimild: on.is