Jarðböðin á Mývatni opnuð eftir tímafrekar framkvæmdir
Jarðböðin á Mývatni hafa nú verið opnuð eftir nokkurra ára framkvæmdir sem stóðu lengur en áætlað var. Nýtt aðstöðuhús er þrefalt stærra en það gamla og lónið hefur stækkað um 35%.
Jarðböðin í Mývatnssveit voru opnuð í dag, nokkrum dögum eftir upphaflega áætlaðan opnunardag. Framkvæmdir við staðinn hafa staðið yfir í nokkur ár og hafa ýmsir þættir tafið opnunina, að sögn framkvæmdastjóra. Þrátt fyrir tafirnar er mikil ánægja með útkomuna.
Jarðböðin eru mikilvægur áfangastaður ferðamanna og var markmiðið að opna á meðan ferðamannastraumurinn er sem mestur. Staðurinn er stærsti atvinnurekandinn í Mývatnssveit og veitir um 70 manns atvinnu þegar mest lætur.
Framkvæmdirnar lögðu áherslu á sjálfbærni, þar sem jarðvegur og grjót úr nágrenninu var nýtt í byggingarefni. Gufubaðið á staðnum nýtir sér jarðhitann sem er á svæðinu. Nýtt aðstöðuhús er þrefalt stærra en það gamla og lónið sjálft hefur verið stækkað um 35%, með plássi fyrir allt að 600 gesti í senn. Kostnaður við framkvæmdirnar nemur milljörðum króna.
Í byggingarferlinu kom upp gríðarstór hellir sem tafði framkvæmdir töluvert og er nú í friðlýsingarferli. Hellirinn er rúmir 100 metrar á lengd og vonir standa til að hægt verði að sýna hluta hans í framtíðinni.
Heimild: RÚV