Íþróttamiðstöð Urriðaholts tekin formlega í notkun

Íþróttamiðstöð Urriðaholts var formlega tekin í notkun þann 10. september, en við það tilefni var blásið til sundlaugapartís í nýjustu sundlaug Garðabæjar. Almar Guðmundsson sagði nokkur orð áður en hann, með aðstoð viðstaddra, tók laugina formlega í

Íþróttamiðstöð Urriðaholts tekin formlega í notkun
Mynd: Braggi.is

Íþróttamiðstöð Urriðaholts var formlega tekin í notkun þann 10. september, en við það tilefni var blásið til sundlaugapartís í nýjustu sundlaug Garðabæjar. Almar Guðmundsson sagði nokkur orð áður en hann, með aðstoð viðstaddra, tók laugina formlega í notkun.

Íþróttamiðstöðin í Urriðaholti hýsir íþróttasal og innisundlaug ásamt tilheyrandi rýmum. Þar má finna innrauða saunu og útisvæði með vaðlaug og heitum potti. Urriðaholtsskóli mun nýta sundlaugina til sundkennslu á skólatíma.

Almar Guðmundsson lýsti ánægju sinni með opnunina og sagði að íbúar Urriðaholts hefðu beðið með eftirvæntingu eftir þessari nýju og glæsilegu íþróttamiðstöð. Til að fagna þessum tímamótum var boðið upp á frían aðgang í laugina um helgina og alla næstu viku. Hressir krakkar aðstoðuðu við að skjóta sundboltum yfir í hinn enda laugarinnar við opnunina.

Í tilefni opnunarinnar var einnig boðið upp á zumba-tíma. Opnunartími Urriðaholtslaugar fyrir almenning er virka daga frá 06:30 til 8:00 og aftur frá 18:00 til 22:00. Um helgar, það er að segja laugardaga og sunnudaga, er opið frá 9:00 til 18:00.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Garðabær

Heimild: Garðabær

Deila Facebook X LinkedIn