ÍSOR hefur hafsbotnsrannsóknir vegna Eyjaganga. Sparker-endurkastmælir notaður í fyrsta sinn á Íslandi
ÍSOR hefur í dag hafið umfangsmiklar hafsbotnsrannsóknir milli lands og Vestmannaeyja sem gætu orðið lykilatriði í mati á mögulegri jarðgangatengingu. Sérfræðingar ÍSOR, ásamt erlendum sérfræðingum, e
ÍSOR hefur í dag hafið umfangsmiklar hafsbotnsrannsóknir milli lands og Vestmannaeyja sem gætu orðið lykilatriði í mati á mögulegri jarðgangatengingu. Sérfræðingar ÍSOR, ásamt erlendum sérfræðingum, eru um borð í sjómælingaskipinu Baldri til að safna gögnum sem varpað geta ljósi á gerð og gæði hafsbotnsins.
Verkefnið er unnið fyrir Eyjagöng ehf. og er mikilvægur áfangi í öflun upplýsinga sem nauðsynlegar eru til að meta jarðfræðilegar aðstæður fyrir hugsanleg jarðgöng. Ef rannsóknirnar ganga vel munu þær veita dýrmætar upplýsingar um uppbyggingu og gæði hafsbotnsins, sem mun leggja grunn að frekari rannsóknum á svæðinu.
Það sem gerir þessar rannsóknir sérstakar er notkun á sparker-endurkastmæli, en þetta er í fyrsta sinn sem slíkur búnaður er notaður á Íslandi. Sparker-endurkastmælirinn er sérhæfður rannsóknarbúnaður sem gerir kleift að kortleggja efstu jarðlögin undir hafsbotninum með mikilli nákvæmni. Tækið var nýlega keypt af átta innlendum stofnunum með stuðningi RANNÍS og er þetta jómfrúarferð þess.
Mælingarnar fara fram um borð í sjómælingaskipinu Baldri, sem er í eigu Landhelgisgæslu Íslands, og er áætlað að þær standi yfir næstu tvær vikurnar. Á þessum tíma munu sérfræðingar ÍSOR, í samstarfi við alþjóðlega sérfræðinga, afla gagna sem nýtast við áframhaldandi rannsóknir og mat á jarðfræðilegum aðstæðum á rannsóknarsvæðinu. Mikil eftirvænting er í loftinu meðal sérfræðinga og Eyjamanna, en Haraldur Pálsson, framkvæmdastjóri Eyjaganga, hefur lýst undirbúningi verkefnisins og stemningunni fyrir mælingunum í umfjöllun Eyjafrétta.
Heimild: isor.is