Hvaða málefni skipta fólk mestu máli fyrir kosningarnar?

RÚV: Skipulagsmál og málefni leik- og grunnskóla eru efst í huga kjósenda fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Gatna- og vegamál eru einnig ofarlega á blaði en almenningssamgöngur ná ekki inn á topp

Hvaða málefni skipta fólk mestu máli fyrir kosningarnar?
Mynd: Ian Findley / Pexels

Skipulagsmál og málefni leik- og grunnskóla eru efst í huga kjósenda fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Gatna- og vegamál eru einnig ofarlega á blaði en almenningssamgöngur ná ekki inn á topp 10 í ákveðnum sveitarfélögum. Þetta sýna niðurstöður úr Þjóðmálakönnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands um viðhorf til málefna fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem fara fram eftir rúma viku.Rúnar Vilhjálmsson, prófessor í félagsfræði, safnaði gögnunum en hann kannaði einnig afstöðu borgarbúa til Borgarlínu og þéttingu byggðar. Þá var einnig könnuð ánægja íbúa með þjónustu sveitarfélaganna á kjörtímabilinu.Fjallað var um könnunina og rætt við Rúnar í Kastljósi í gær.

Upprunaleg grein

RÚV

→ Lesa greinina í heild
Deila Facebook X LinkedIn

Aðrar fréttir

📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →