Málefni barna Hafnfirðingum hugleikin fyrir kosningar
Málefni unga fólksins eru kjósendum í Hafnarfirði hugleikin, til dæmis hvað varðar fæðingarorlof, dagvistun, skólamál og húsnæðismál.Hafnarfjörður er þriðja stærsta sveitarfélag landsins. Þar búa ríflega 32 þúsund manns, miðað við mannfjölda síðustu
Málefni unga fólksins eru kjósendum í Hafnarfirði hugleikin, til dæmis hvað varðar fæðingarorlof, dagvistun, skólamál og húsnæðismál.Hafnarfjörður er þriðja stærsta sveitarfélag landsins. Þar búa ríflega 32 þúsund manns, miðað við mannfjölda síðustu áramót.Á liðnu kjörtímabili hafa Framsókn og Sjálfstæðisflokkur verið þar í meirihluta. Auk þeirra eru nú í framboði Vinstrið, Viðreisn, Miðflokkurinn og Samfylkingin.Börn komast inn í leikskóla fjórtán mánaða í Hafnarfirði. Bæjarbúar sem fréttastofa ræddi við vilja sjá meira gert fyrir foreldra ungbarna. „Fæðingarorlofsmálin, að fólk fái heimgreiðslurnar sem er verið að tala um, að fólk þurfi ekki að setja börn á leikskóla 12 mánaða, það geti valið,“ segir íbúi í bænum.
Heimild: RÚV